Lýsing
Gomboy með meðalgrófum tönnum er fjölnota sög fyrir ýmis verkefni. Hentarf vel í almennar snyrtingar eða fyrir útivistina.
Gomboy er með einstakar tennur og sagar á toginu, sem krefst minni orku og gerir sögina auðvelda í stjórn. Þetta gerir þér ekki aðeins kleift að saga mjög hratt í gegnum þykka trjástofna heldur einnig að gera mjög nákvæman skurð. Það kemur sér vel þegar nákvæmni skiptir máli.
Gúmmíhandfang Gomboy tryggir öruggt og þægilegt grip. Gatið í handfanginu gerir kleift að festa karabínu eða reipi við sögina. Þegar s0gin er samanbrotin eru tennurnar alveg faldar inni í handfanginu, þannig að þú getur geymt hana lausa í bakpokanum.
Halda þarf sagarblaðinu hreinu til að viðhalda góðri virkni þess. Trjákvoða leysist upp í ólífuolíu, sem er áhrifarík og umhverfisvæn leið til að hreinsa og viðhalda blaðinu. Sterkari hreinsivökvar geta skemmt gúmmíefnið í handfanginu.
Þegar sögin er ekki í notkun skal tryggja að hún sé alltaf þurr.
Tæknilegar upplýsingar
Ekta hágæða japanskt stál
Lengd blaðs: 270 mm
Tennur: 10 tennur á hverja 30 mm
Mál: 305 × 65 × 20 mm
Þyngd: 280 g
Skurðbreidd (kerf): 1,4 mm