Arboristanámskeið til réttinda er ætlað fagfólki sem vinnur við trjáfellingar og vill öðlast færni í öruggu klifri í trjám við trjáfellingar. Námskeiðið er kennt samkvæmt stöðlum ABA International og veitir þátttakendum A1–A3 Arborist Certification arboristaréttindi.
Arboristanámið skiptist í þrjú stig: A1, A2 og A3.
A1: Farið er yfir helstu hnúta sem notaðir eru við arboristavinnu, klifur í trjám, björgun úr línum, björgun úr sporum og notkun handsagar í tré.
A2: Farið er yfir örugga notkun keðjusagar í tré.
A3: Farið er yfir hvernig greinar og bolir eru látnir síga niður í böndum (rigging) á öruggan hátt.
Öryggi er í fyrirrúmi á öllum námskeiðum okkar. Farið er ítarlega yfir áhættugreiningu og björgunaráætlanir ef slys verður. Kennslan byggir á stöðlum ABA International til að tryggja fagleg vinnubrögð og örugga framkvæmd. Í lok hvers námskeiðs er tekið próf sem er sent til yfirferðar hjá ABA International. Að loknu mati eru réttindi gefin út bæði á PDF-formi og sem rafrænn e-passi á aba-skills.com, þar sem hægt er að nálgast réttindin allan sólarhringinn. Réttindin eru gefin út til fimm ára. Að þeim tíma liðnum er mælt með að fara í endurmat til að endurnýja réttindin.
Við erum center fyrir ABA International. Við bjóðum upp á námskeið og próf sem leiða til vottorðs í trjáklifri (Arborist Certificate) og keðjusagarvottorðs (Chainsaw Certificate).
ABA International er sjálfseignarstofnun sem hefur starfað síðan árið 2009. Samtökin urðu til sem framhald af verkefninu European Chainsaw Certificate (ECC) og sem svar við alþjóðlegri þörf fyrir gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og réttindum innan trjáhirðu- og skógræktargeirans.
ABA International veitir alþjóðlega viðurkennda staðla fyrir þjálfun, mat og vottun. Staðlar ABA veita atvinnurekendum traust á hæfni umsækjenda og skapa starfsfólki aukin atvinnutækifæri. Jafnframt leitast ABA International við að hækka gæði þjálfunar og vottunar og tryggja stöðuga þróun byggða á nýjustu stöðlum og bestu starfsvenjum innan greinarinnar.
ABA International starfar í 30 löndum víðs vegar um heiminn og innan kerfisins starfa prófdómarar sem hafa framkvæmt yfir 2.000 próf.
Við erum stolt af því að geta verið hluti af ABA International og tekið þátt í verkefninu, bæði hvað varðar þjálfunarstaðla og möguleikann á að halda vottunarpróf.