• Arboristanámskeið

    A1

A1 - Arboristanámskeið

Stig: A1

Heiti Námskeiðs: Klifur í trjám, björgun og notkun á handsög

Inngöngu skilirði: Engin

Aldurstakmark: 18 ára

Ráðlagður tími: 4 dagar. Að lágmarki 18 klst. samfellt nám (próf ekki innifalið)

Kennslumáti: Verkleg kennsla og lokamat

Viðurkenning: Alþjóðlegt / evrópskt keðjusagarskírteini og stafrænt e-vegabréf (aðgengilegt allan sólarhringinn)

Gildistími: 5 ár

Búnaður og hlífðarfatnaður: Allur búnaður fyrir þjálfun er skaffaður af Fellitækni fyrir utan hlífðarfatnað.

Lágmarks krafa um hlífðarfatnað: Vinnuhanskar, góðar buxur, skór með góðu gripi, hjálmur sem gerður er fyrir klifur og með hökubandi.

Verð: 337.000 kr

*námskeið er haldið þegar lágmarksfjölda nemenda er náð. Lágmarksfjöldi fyrir nánskeið er 3 manns. 

Arboristanámskeið A1,Klifur, björgun og notun á handsög í trjám

Námskrá

A1 er arboristanámskeið til réttinda þar sem farið er yfir helsatu aðferðir við klifur í trjám. Verkleg þjálfun í að kaspta upp línum, helstu hnúta, notkun á hansög, björgun úr línum og björgun úr sporum. 

  1. Vita af hverju persónuhlífar (PPE) eru nauðsynlegar og hvaða búnað þarf að nota
  2. Geta greint hættur og áhættu og fylgt viðeigandi varúðarráðstöfunum
  3. Þekkja kröfur um skráningu slysa, atvika og viðbragða
  4. Geta skoðað og notað persónuhlífar á réttan hátt
  5. Geta framkvæmt áhættumat og neyðaráætlanir
  6. Geta framkvæmt öryggisskoðun á búnaði
  7. Þekkja orsakir mögulegrar mengunar og umhverfisspjalla og hvernig megi koma í veg fyrir þær, ásamt lagalegum kröfum
  8. Þekkja öryggissjónarmið sem þarf að hafa í huga við trjáklifur
  9. Geta klifrað í tré á öruggan hátt með mismunandi aðferðum
  10. Þekkja kröfur um björgunaráætlun og umönnun slasaðs einstaklings
  11. Geta farið út á greinar (branch walk) og beitt björgunaraðferðum úr trjátoppnum
  12. Geta snyrt greinar á öruggan hátt með handsög
  13. Geta framkvæmt björgun af trjástofni (pole/stem rescue)
  14. Þekkja hættur sem fylgja notkun óviðeigandi aðferða við trjáklifur, notkun handsaga og björgunaraðferðir (aerial rescue)

Sendu okkur fyrirspurn

Við erum center fyrir ABA International. Við bjóðum upp á námskeið og próf sem leiða til vottorðs í trjáklifri (Arborist Certificate) og keðjusagarvottorðs (Chainsaw Certificate).

ABA International er sjálfseignarstofnun sem hefur starfað síðan árið 2009. Samtökin urðu til sem framhald af verkefninu European Chainsaw Certificate (ECC) og sem svar við alþjóðlegri þörf fyrir gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og réttindum innan trjáhirðu- og skógræktargeirans.

ABA International veitir alþjóðlega viðurkennda staðla fyrir þjálfun, mat og vottun. Staðlar ABA veita atvinnurekendum traust á hæfni umsækjenda og skapa starfsfólki aukin atvinnutækifæri. Jafnframt leitast ABA International við að hækka gæði þjálfunar og vottunar og tryggja stöðuga þróun byggða á nýjustu stöðlum og bestu starfsvenjum innan greinarinnar.

ABA International starfar í 30 löndum víðs vegar um heiminn og innan kerfisins starfa prófdómarar sem hafa framkvæmt yfir 2.000 próf.

Við erum stolt af því að geta verið hluti af ABA International og tekið þátt í verkefninu, bæði hvað varðar þjálfunarstaðla og möguleikann á að halda vottunarpróf.