Keðjusagar- og trjáfellingarnámskeið

Keðjusagar- og trjáfellingarnámskeið til réttinda eru ætluð fagfólki sem starfar við trjáfellingar. Námskeiðin eru kennd samkvæmt stöðlum ABA International og veita alþjóðleg réttindi, annars vegar International Chainsaw Certification (ICC) og hins vegar European Chainsaw Certification (ECC). Með náminu öðlast þátttakendur viðurkennda þekkingu og færni í öruggri og faglegri meðferð keðjusaga.

Keðjusagar- og trjáfellingarnámskeið skiptast í fjögur stig: ICC1/ECC1, ICC2/ECC2, ICC3/ECC3 og ICC4/ECC4.

ICC1/ECC1: Farið er yfir alla helstu öryggisþætti við notkun keðjusagar. Einnig eru æfðir krossskurðir og bore cut (borunarskurður).
ICC2/ECC2: Farið er yfir helstu aðferðir við að fella tré undir 38 cm í þvermál, bæði framhallandi, afturhallandi og bein tré. Einnig er kennt hvernig losa má tré sem hefur festst í öðru tré án þess að nota víraspil.
ICC3/ECC3: Farið er yfir aðferðir við að fella tré sem eru yfir 38 cm í þvermál, bæði bein og afturhallandi. Auk þess er farið yfir hvernig losa má tré sem hefur fest sig svo illa að nota þarf víraspil til að ná því niður.
ICC4/ECC4: Farið er yfir fellingu vindbrotinna og skemmdra trjáa, hvernig losa má rótarköku á öruggan hátt, fella hálffallin tré og fella toppbrotin tré á öruggan og hátt.

Öryggi er í fyrirrúmi á öllum námskeiðum okkar. Farið er ítarlega yfir áhættugreiningu og björgunaráætlanir ef slys verður. Kennslan byggir á stöðlum ABA International til að tryggja fagleg vinnubrögð og örugga framkvæmd. Í lok hvers námskeiðs er tekið próf sem er sent til yfirferðar hjá ABA International. Að loknu mati eru réttindi gefin út bæði á PDF-formi og sem rafrænn e-passi á aba-skills.com, þar sem hægt er að nálgast réttindin allan sólarhringinn. Réttindin eru gefin út til fimm ára. Að þeim tíma liðnum er mælt með að fara í endurmat til að endurnýja réttindin.

Viðhald og krossskurðir

Keðjusagarnámskeið

ICC1

Trjáfellingar upp að 38cm þvermál

Trjáfellingarnámskeið

ICC2

Trjáfellingar yfir 38cm þvermál

Trjáfellingarnámskeið

ICC3

Vindbrotin og skemmd tré

Trjáfellingarnámskeið

ICC4

Arboristanámskeið

Arboristanámskeið til réttinda er ætlað fagfólki sem vinnur við trjáfellingar og vill öðlast færni í öruggu klifri í trjám við trjáfellingar. Námskeiðið er kennt samkvæmt stöðlum ABA International og veitir þátttakendum A1–A3 Arborist Certification arboristaréttindi.

Arboristanámið skiptist í þrjú stig: A1, A2 og A3.

A1: Farið er yfir helstu hnúta sem notaðir eru við arboristavinnu, klifur í trjám, björgun úr línum, björgun úr sporum og notkun handsagar í tré.
A2: Farið er yfir örugga notkun keðjusagar í tré.
A3: Farið er yfir hvernig greinar og bolir eru látnir síga niður í böndum (rigging) á öruggan hátt.

Öryggi er í fyrirrúmi á öllum námskeiðum okkar. Farið er ítarlega yfir áhættugreiningu og björgunaráætlanir ef slys verður. Kennslan byggir á stöðlum ABA International til að tryggja fagleg vinnubrögð og örugga framkvæmd. Í lok hvers námskeiðs er tekið próf sem er sent til yfirferðar hjá ABA International. Að loknu mati eru réttindi gefin út bæði á PDF-formi og sem rafrænn e-passi á aba-skills.com, þar sem hægt er að nálgast réttindin allan sólarhringinn. Réttindin eru gefin út til fimm ára. Að þeim tíma liðnum er mælt með að fara í endurmat til að endurnýja réttindin.

Klifur, björgun og notkun á handsög

Arboristanámskeið A1

A1

Notkun á kejusög við klifur

Arboristanámskeið A2

A2

Fella tré með böndum (rigging)

Arboristanámskeið A3

A3

Sendu okkur fyrirspurn

Við erum center fyrir ABA International. Við bjóðum upp á námskeið og próf sem leiða til vottorðs í trjáklifri (Arborist Certificate) og keðjusagarvottorðs (Chainsaw Certificate).

ABA International er sjálfseignarstofnun sem hefur starfað síðan árið 2009. Samtökin urðu til sem framhald af verkefninu European Chainsaw Certificate (ECC) og sem svar við alþjóðlegri þörf fyrir gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og réttindum innan trjáhirðu- og skógræktargeirans.

ABA International veitir alþjóðlega viðurkennda staðla fyrir þjálfun, mat og vottun. Staðlar ABA veita atvinnurekendum traust á hæfni umsækjenda og skapa starfsfólki aukin atvinnutækifæri. Jafnframt leitast ABA International við að hækka gæði þjálfunar og vottunar og tryggja stöðuga þróun byggða á nýjustu stöðlum og bestu starfsvenjum innan greinarinnar.

ABA International starfar í 30 löndum víðs vegar um heiminn og innan kerfisins starfa prófdómarar sem hafa framkvæmt yfir 2.000 próf.

Við erum stolt af því að geta verið hluti af ABA International og tekið þátt í verkefninu, bæði hvað varðar þjálfunarstaðla og möguleikann á að halda vottunarpróf.