Silky Pocketboy 130-8 Red folding sög

Þessi fjölhæfa samanbrjótanlega sög er fullkomin fyrir allar almennar greinasnyrtingar í garðinum. Láttu stærð Pocketboy ekki blekkja þig – þessi litla sög skilar frábærri frammistöðu! Og þar sem Pocketboy passar auðveldlega í vasann geturðu alltaf haft hana við höndina.

Til á lager

8.121 kr.

Vörunúmer: KSI534613

Til á lager

Lýsing

Þessi fjölhæfa samanbrjótanlega sög er fullkomin fyrir allar almennar greinasnyrtingar í garðinum. Láttu stærð Pocketboy ekki blekkja þig – þessi litla sög skilar frábærri frammistöðu! Og þar sem Pocketboy passar auðveldlega í vasann geturðu alltaf haft hana við höndina.

Pocketboy er létt og fullkomlega ballanseruð sög.  Greinasnyrting hefur aldrei verið jafn skemmtileg!

Ef þú ert ekki vanur að nota Silky sög skaltu hafa í huga að tennurnar eru mjgö beittar og saga mjög hratt í gegnum viðinn. Jafnvel eftir mikla notkun halda tennurnar bitinu lengi og skilja alltaf eftir sléttan skurð sem tréð nær fljótt og vel að gróa yfir.

Þegar Pocketboy er ekki í notkun er auðvelt að brjóta blaðið saman. Beittar tennurnar eru örugglega faldar þar sem þær eru alveg inni í handfanginu. Þegar þörf er á söginni er auðvelt að opna hana með skorunni í blaðinu, jafnvel með hönskum.

Gúmmíhandfangið dregur úr titringi og veitir fullkomið grip. Pocketboy liggur vel í hendi, jafnvel við langvarandi notkun. Gatið í handfanginu gerir kleift að festa reipi eða karabínu við sögina.

Þú getur borið Pocketboy á belti í gegnsæju harðplast hulstri sem fylgir með, eða valið hentugt gúmmíhylki. Einnig er auðvelt að geyma þessa samanbrjótanlegu sög í verkfærakassa.

Óvenjuleg sögunargeta Pocketboy hefur gefið henni viðurnefnið „Litli risinn“ (Little Giant).

Tæknilegar upplýsingar

Ekta hágæða japanskt stál
Lengd blaðs: 130 mm
Tennur: 8 tennur á hverja 30 mm
Mál: 290 × 60 × 25 mm
Þyngd: 170 g
Skurðbreidd (kerf): 1,4 mm

Halda þarf sagarblaðinu hreinu til að viðhalda góðri virkni þess. Trjákvoða leysist upp í ólífuolíu, sem er áhrifarík og umhverfisvæn leið til að hreinsa og viðhalda blaðinu. Sterkari hreinsivökvar geta skemmt gúmmíefnið í handfanginu.

Þegar sögin er ekki í notkun skal tryggja að hún sé alltaf þurr. Geymið sögina í slíðrinu á þurrum stað.