Okatsune 101 Greinaklippur S

Blöð þessara einstaklega beittu greinaklippa eru smíðuð úr hágæða japönsku stáli, sömu tegund og notuð var til að smíða katana-sverð samúræjanna. Með þeim er auðvelt og fyrirhafnarlítið að klippa greinar allt að 25 mm í þvermál, hvort sem um er að ræða runna, rósir, ávaxtatré, klifurplöntur eða annan gróður.

Okatsune greinaklippurnar eru óumdeilanlega þær vinsælustu í Japan, landi þar sem trjá- og runnaklippingar hafa verið þróaðar í sannkallaða listgrein.

Til á lager

9.193 kr.

Vörunúmer: KST101

Til á lager

Lýsing

Okatsune 101 greinaklippurnar eru hrein og tær birtingarmynd þess sem góðar greinaklippur eiga að vera:

  • Flugbeittar og tryggja ávallt hreinan og nákvæman skurð.

  • Einföld og hagnýt hönnun sem tryggir hámarksþægindi við notkun.

  • Einstaklega sterkar og endingargóðar en jafnframt léttar.

Blöð þessara japönsku greinaklippa (Sentei Basami) eru smíðuð með einstakri aðferð úr hágæða IZUMO YASUGI stáli og hafa hörku upp á 60–61 á Rockwell-kvarða. Þessi mikla harka tryggir að blöðin haldist beitt lengi og skeri ávallt hreint og nákvæmlega í gegnum viðinn án þess að beita þurfi miklu afli. Okatsune hefur jafnframt tekist að sameina þessa miklu hörku og einstakan sveigjanleika, sem tryggir að skurðarblaðið falli ávallt vel að mótblaðinu, jafnvel undir miklu álagi.

Skurðarblaðið er brýnt í tveimur mismunandi hornum, sem gerir því kleift að renna mjúklega í gegnum viðinn án þess að valda plöntunni óþarfa skemmdum. Sérstök holslípuð lögun blaðsins gerir það að verkum að plöntusafi rennur frá skurðarfletinum og kemur þannig í veg fyrir að blöðin gliðni í sundur við klippingu. V-laga gormurinn dreifir álaginu jafnt eftir allri lengd sinni og tryggir mjúka og þægilega lokun klippanna.

Mjög auðvelt er að brýna blöðin með Okatsune brýnslusteininum.

Greinaklippurnar eru búnar einföldum og þægilegum læsingarbúnaði sem hægt er að stjórna með annarri hendi.

Ekki gleyma að panta leðurhulstur fyrir Okatsune greinaklippurnar um leið. Hulstrið er með beltislykkju sem gerir þér kleift að bera klippurnar á öruggan hátt þegar þær eru ekki í notkun, en hafa þær samt ávallt við höndina. Hulstrið verndar jafnframt klippurnar og stuðlar að lengri endingartíma þeirra.

Tæknilegar upplýsingar

  • Henta vel fyrir minni hendur

  • Heildarlengd klippa: 180 mm

  • Lengd skurðarblaðs: 53 mm

  • Hámarksþvermál greina: 25 mm

  • Léttar og meðfærilegar: 177 g

  • Harka skurðarblaðs: 60–61 HRC (Rockwell-hörkukvarði)

  • Framleiddar úr Izumo Yasugi stáli