Silky Woodboy 240-26 trésög

Woodboy er vinsæl handsög meðal faglærðra trésmiða og hentar einstaklega vel til þversögunar og hornsögunar.

Til á lager

15.305 kr.

Vörunúmer: KSI638624

Til á lager

Lýsing

Woodboy er vinsæl handsög meðal faglærðra trésmiða og hentar einstaklega vel til þversögunar og hornsögunar. Sagarblaðið á þessari Kataba-gerð er örlítið þykkara en á Dozuki-gerðinni. Því er ekki þörf á styrktum baki á sagarblaðinu og sögunardýptin er þar af leiðandi ekki takmörkuð.

Þunnt og sveigjanlegt sagarblaðið er trapisulaga og búið sérstökum tönnum frá Silky sem eru ekki víxllagðar. Þetta tryggir fínan, beinan og nákvæman skurð, sem hentar sérstaklega vel við gerð svalahalssamsetninga í trésmíði. Sagarblaðið er slípað íhvolft á báðum hliðum, sem auðveldar losun sagaryks og tryggir mjúka og skilvirka sögun.

Woodboy-sögin sker þegar henni er togað að notandanum og krefst því lítillar fyrirhafnar. Sögunin er létt og þægileg og veitir framúrskarandi stjórn og nákvæmni. Skurðflöturinn verður einstaklega sléttur og með réttri notkun getur slípun orðið óþörf!

Hægt er að læsa sagarblaðinu í tveimur mismunandi stöðum eftir því hvernig best hentar við sögun. Að notkun lokinni er auðvelt að brjóta sögina saman þannig að beittar tennurnar hverfa alveg inn í handfangið. Þannig er hægt að geyma sögina á öruggan hátt án þess að hætta sé á skemmdum á sagarblaðinu eða hlutum í kring.

Handfangið er úr áli og húðað með gúmmíi sem tryggir gott og öruggt grip ásamt því að draga úr titringi við sögun.

Woodboy er ein af þessum ómissandi handsögum sem gott er að hafa ávallt við höndina fyrir litla, einfalda og nákvæma skurði sem koma fyrir í nánast öllum trésmíðaverkefnum.

Tæknilegar upplýsingar

  • Hágæða japanskt stál

  • Lengd sagarblaðs: 240 mm

  • Tennur: 26 tennur á hverja 30 mm

  • Mál í opinni stöðu: 560 × 50 × 20 mm

  • Mál í samanbrotinni stöðu: 305 × 65 × 15 mm

  • Þyngd: 218 g

  • Sagarfar: 0,76 mm

Mikilvægt er að halda sagarblaðinu hreinu til að tryggja hámarksafköst og góða endingu. Trjákvoða leysist upp í ólífuolíu, sem er bæði áhrifarík og umhverfisvæn leið til að hreinsa og viðhalda sagarblaðinu. Sterk hreinsiefni og leysiefni geta skemmt gúmmíhúðun handfangsins.