SawWrapz V2 Svart Grip fyrir keðjusög

SawWrapz V2 grip sem er sérstaklega hannað fyrir handföng keðjusaga. Hægt er að vefja því utan um fremra handfangið, aftara handfangið eða bæði. Teipið tryggir gott grip, jafnvel í bleytu, dregur úr titringi og minnkar álag á hendur, svo þú getur unnið lengur án þess að þreytast.

Til á lager

5.053 kr.

Vörunúmer: SAW0001

Til á lager

Lýsing

SawWrapz V2 grip sem er sérstaklega hannað fyrir handföng keðjusaga. Hægt er að vefja því utan um fremra handfangið, aftara handfangið eða bæði. Teipið tryggir gott grip, jafnvel í bleytu, dregur úr titringi og minnkar álag á hendur, svo þú getur unnið lengur án þess að þreytast.

SawWrapz V2 gripið er framleitt úr sterkara efni og með betra lími en fyrri útgáfan. Teipið er með sléttum brúnum sem koma í veg fyrir að það festist í hönskum eða greinum.

Hver rúlla er 21 cm að lengd, 3 cm á breidd og 0,3 cm á þykkt. Fáanlegt í átta litum.

Passar á flestar gerðir keðjusaga, þar á meðal Stihl, Husqvarna, Echo, Makita, Milwaukee og fleiri. Hentar jafnt fyrir bensín- og rafhlöðuknúnar keðjusagir, hvort sem þær eru með efra eða aftara handfangi.

Auðvelt að setja á – tekur aðeins um 10 mínútur.

Hreinsaðu handfangið vel áður en teipið er sett á. Byrjaðu á öðrum endanum og vefðu teipinu utan um handfangið þannig að hver umferð skarist um það bil um helming af breidd teipsins. Þrýstu teipinu vel niður jafnóðum.

Þúsundir keðjusagarnotenda um allan heim treysta SawWrapz.

Innihald pakkningar:
Ein rúlla af SawWrapz V2 gripteipi, 21 × 3 × 0,3 cm

Hvað get ég notað það á: 

Þú getur vafið teipinu utan um nánast hvaða handfang sem er. Ein rúlla dugar til að vefja utan um hefðbundið keðjusagarhandfang. Ef þú ætlar að vefja gripinu utan um full weap handfang þarftu að kaupa tvær rúllur!

Hiti í handfangi:

SawWrapz hefur verið prufað á handföngum með hita án nokkurra vandræða.

Hvað endist það lengi:

SawWrapz gripteipið getur enst í vel yfir 6 mánuði. Með tímanum dofnar liturinn vegna notkunar og höggdeyfandi svampurinn undir teipinu missir smám saman virkni sína. Við mælum með að skipta um gripteipið á 3–6 mánaða fresti til að tryggja sem besta gripið og hámarksvörn gegn titringi.